Mikilvægasta máltíð dagsins er skemmtileg og girnileg sería þar sem allir Íslendingar ættu að finna máltíð við sitt hæfi. Verkin eru litrík og eru í formum sem teljast ekki beint hefðbundin fyrir listaverk á striga. Ásamt litríkum bakgrunni myndanna og girnilegs matar, eru það teiknimyndapersónurnar og umhverfið í kring um matinn það sem gerir myndirnar súrrealískar. Gaman er að sjá hvernig maturinn og persónurnar spila saman og hvaða heildarsýn það gefur. Hugmyndin af seríunni tengist hugmynd minni um mat og tilfinningunni sem maður fær þegar góður matur er borðaður. Það er nánast eins og barnslegt eðli taki við og persónurnar sem við þekkjum úr teiknimyndum eru birtingarmynd þess.
The most important meal of the day is a fun and tasty looking series where all Icelanders should find something to their liking. The paintings are colourful, and most are painted on unusual forms of canvases. Along with colourful backgrounds and tasty looking food, are cartoon caracters and their interaction and landscape of the food that makes it surreal. It´s interesting to see how the characters interact with the food and seeing how it all ties together. The idea of the series are based on my ideas and feelings that one feels when they eat good food. The cartoon caracters reprecent that almost childish longing for good food.